3. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 147. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 19. september 2017 kl. 10:07
Opinn fundur


Mætt:

Jón Steindór Valdimarsson (JSV) formaður, kl. 10:07
Svandís Svavarsdóttir (SSv) 1. varaformaður, kl. 10:07
Njáll Trausti Friðbertsson (NF) 2. varaformaður, kl. 10:07
Birgir Ármannsson (BÁ) fyrir Brynjar Níelsson (BN), kl. 10:07
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 10:07
Hildur Sverrisdóttir (HildS), kl. 10:07
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ), kl. 10:07
Lilja Alfreðsdóttir (LA), kl. 10:07
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 10:07
Theodóra S. Þorsteinsdóttir (ThÞ), kl. 10:07
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) fyrir Evu Pandoru Baldursdóttur (EPB), kl. 10:07

Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir

Bókað:

1) Reglur um uppreist æru Kl. 10:07
Á fundinn komu Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra, Haukur Guðmundsson ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytis og Kristín Einarsdóttir lögfræðingur í dómsmálaráðuneyti.

Sigríður Á Andersen, dómsmálaráðherra, fór yfir reglur um uppreist æru og framkvæmd í ráðuneytinu ásamt því að svara spurningum nefndarmanna.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:00

Upptaka af fundinum